Freyr Alexandersson, þjálfari A landsliðs kvenna, hefur gefið út byrjunarlið Íslands fyrir leikinn gegn Danmörku. Leikurinn hefst 18:30.
Aðeins einn leikmaður getur ekki spilað vegna meiðsla, en það er Fanndís Friðriksdóttir.
Dómari leiksins kemur frá Suður-Kóreu og heitir Hyeon Jeong Oh. Henni til aðstoðar verða Maiko Hagio, frá Japan, og Mengxiao Bao, frá Kína. Fjórði dómari leiksins er Casey Reibelt frá Ástralíu.
Byrjunarlið Íslands – 3-5-2:
Sandra Sigurðardóttir
Ingibjörg Sigurðardóttir
Glódís Perla Viggósdóttir
Sif Atladóttir
Svava Rós Guðmundsdóttir
Hallbera Guðný Gísladóttir
Sara Björk Gunnarsdóttir
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir
Rakel Hönnudóttir
Sandra María Jessen
Agla María Albertsdóttir