Indriði Sigurðsson verður einn af sérfræðingum Pepsi markanna í sumar.
Greint var frá því í gær að Freyr Alexandersson kæmi einnig inn í þættina.
Indriði lagði skóna á hilluna síðasta sumar en hann lék þá með KR.
Indriði átti góðan feril í atvinnumennsku áður en hann kom heim.
Hörður Magnússon heldur áfram sem stjórnandi þáttarins en hann hefur stýrt Pepsi mörkunum í mörg ár.
Indriði Sigurðsson kemur sem ferskur andblær inn í Pepsímörkin sem álitsgjafi. 66 landsleikir fyrir Íslands hönd og tvö mörk og farsæll ferill sem atvinnumaður í Noregi og Belgíu. Lék með Genk, Lilleström, Lyn og Viking. Lagði skóna á hilluna á síðustu leiktíð vegna meiðsla.
— Pepsimörkin (@Pepsimorkin) March 13, 2018