fbpx
Laugardagur 20.júlí 2024
433

FH gæti fengið greitt frá Kína ef leikmaðurinn spilar ekkert

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 2. mars 2018 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Peningar stjórna nú orðið íþróttum og hvergi meira en í fótboltanum þar sem rosalegar upphæðir eru í boði. Í Kína eru ótrúlegar fjárhæðir í boði fyrir leikmenn sem þangað koma og til að reyna að stoppa þessa þróun voru settar reglur um fjölda erlendra leikmanna hjá hverju liði.

Hvert lið í úrvalsdeildinni í Kína má aðeins hafa fimm erlenda leikmenn á launaskrá sinni, þetta er gert til að reyna að bæta fótboltann í Kína og leikmenn þaðan, tryggja að þeir fái að spila. Hvert lið má svo aðeins vera með fjóra erlenda leikmenn á vellinum á hverjum tíma.

Lið í Kína reyna því oft að losa sig við erlenda leikmenn sem eru meiddir eða hafa ekki staðið undir væntingum og fara ýmsar leiðir til þess. Það vakti nefnilega talsverða athygli þegar FH fékk Edigeison Almeida Gomes varnarmann frá Gíneu-Bissá lánaðan frá Henan Jianye í Kína í vikunni. Gomes er meiddur og þar að auki líklega alltof góður til að spila á Íslandi,

Gomes lék í Danmörku og lék með landsliði Dana á Ólympíuleikunum árið 2016. Danskir fjölmiðlar áttuðu sig ekki á því hvað Gomes væri að gera á Íslandi, hann væri allt of góður leikmaður fyrir Pepsi-deildina.

Henan Jianye var með fimm erlenda leikmenn þegar Gomes var í herbúðum félagsins og ekki útlit fyrir að hann spilaði á næstunni, félagið vildi því koma honum burt um tíma til að ná inn öðrum erlendum leikmanni áður en félagaskiptaglugginn í Kína lokaði á fimmtudag, það gekk eftir. Gomes var lánaður til FH og inn kom Cala frá Getafe. Ekki er öruggt að Gomes komi til Íslands en hann mun vera í endurhæfingu í Kína. Ef hann kemur ekki til með að spila neitt fyrir FH getur félagið átt von á greiðslu frá Henan Jianye.

„Hann er meiddur og allir sem eru meiddir vonast til þess að verða heilir, við gerum þetta þannig að ef hann lagast ekki þá er þetta okkur að kostnaðarlausu. Þeir stjórna endurhæfingunni, þeir hafa fleiri og betri sjúkraþjálfara en við hérna,“ sagði Jón Rúnar Halldórsson formaður knattspyrnudeildar FH við 433.is.

,,Það er enginn kostnaður á okkur, það gæti farið svo ef hann spilar lítið eða ekkert þá fengjum við greiðslu en það myndi þá snúast við ef hann spilar mikið að þá yrðum við að greiða eitthvað. Þessi greiðsla sem við gætum fengið er í raun þá fyrirhafnargjald ef hann spilar ekki, það eru ekki neinar upphæðir. Þetta kom upp í gegnum umboðsmann í Danmörku.“

Tveir starfsmenn liða í Pepsi-deild karla sem 433.is ræddi við sögðu að tilboð sem þessi kæmu sífellt oftar frá Asíu. Þannig væri liðum oft boðnar 2–3 milljónir fyrir það eitt að taka við leikmanni frá Kína sem liðin þurfa að losa sig við, hvort sem það er tímabundið eða til frambúðar. Leikmaðurinn sjálfur kæmi aldrei til Íslands en félagið hefði gróða af þessu. Framkvæmdastjóri eins liðs í deildinni, sem vildi ekki koma fram undir nafni, sagði þetta ekki ólöglegt. „Við höfum fengið nokkur svona tilboð, þetta hljómar vel og þetta er ekki ólöglegt en svo er annað mál hvort þetta geti talist siðlaust. Við ákváðum að taka ekki þátt í þessu, liðin í Asíu eru undir hörðum reglum en eiga gríðarlega fjármuni. Þau geta því nýtt sér lið í minni deildum þegar þau þurfa að komast fram hjá reglunum í sínu landi er varðar erlenda leikmenn.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Yamal í fótspor Messi

Yamal í fótspor Messi
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Adam lánaður til Ítalíu – Framlengdi á Hlíðarenda

Adam lánaður til Ítalíu – Framlengdi á Hlíðarenda
433Sport
Í gær

Frægur einstaklingur fór vel yfir strikið: Hótaði manninum öllu illu – ,,Ég er að koma að rífa úr þér tennurnar og berja þig“

Frægur einstaklingur fór vel yfir strikið: Hótaði manninum öllu illu – ,,Ég er að koma að rífa úr þér tennurnar og berja þig“
433Sport
Í gær

Sambandsdeildin: Breiðablik áfram eftir að hafa lent undir á Kópavogsvelli

Sambandsdeildin: Breiðablik áfram eftir að hafa lent undir á Kópavogsvelli