Aðalfundur knattspyrndeildar fór fram í gærkvöldi (þriðjudag), margt var um manninn og mættu hátt í 60 manns á fundinn.
Kristinn Kjærnested var kosinn formaður Knattspyrnudeildar en hann hefur verið í starfinu síðustu ár
Þrír nýir aðilar koma inn í stjórn en það eru þeir; Páll Kristjánsson, Kristinn Jóhannes Magnússon og Sigurður Örn Jónsson.
,,Þar af leiðandi hættu þrír í stjórninni og er þeim þakkað fyrir ómetanlegt starf á síðastliðnum árum. Þeir eru: Þorlákur Björnsson, Gísli Hall og Einar Örn Ólafsson,“ segir á heimasíðu KR.
Bæði Kristinn Jóhannes og Sigurður Örn voru leikmenn KR og þekkja vel til hjá félaginu.