KR 1 – 3 Valur:
0-1 Hallbera Guðný Gísladóttir
1-1 Mónika Hlíf Sigurhjartardóttir
1-2 Hallgerður Kristjánsdóttir
1-3 Ragna Guðrún Guðmundsdóttir
Valur er Reykjavíkurmeistari kvenna eftir sigur á KR í úrslitaleik sem fór fram í Egilshöllinni í kvöld.
Hallbera Guðný Gísladóttir kom Val yfir áður en Mónika Hlíf jafnaði fyrir KR.
Það voru svo Hallgerður Kristjánsdóttir og Ragna Guðrún sem tryggðu sigur Vals í síðari hálfleik.
Pétur Pétursson tók við þjálfun Vals í vetur og hefur nú tryggt liðinu sinn fyrsta titil.