Hrannar Björn Steingrímsson og Hallgrímur Mar Steingrímsson voru á skotskónum fyrir KA í dag.
KA tók á móti ÍR í Lengjubikarnum í dag á Akureyri og vann 2-1 sigur.
Aron Skúli Brynjarsson skoraði mark ÍR seint í leiknum.
Valur vann 1-2 sigur á Víkingi R. í Egilshöll þrátt fyrir að vera tíu í stóran hluta leiksins.
Nikolaj Andreas Hansen kom Víkingi yfir snemma leiks og Andri Fannar Stefánsson fékk rautt hjá Val á 18 mínútu.
Tobias Thomsen skoraði hins vegar tvisvar fyrir Val, eitt mark í hvorum hálfleik sem tryggði Val sigur. Sigurmarkið kom úr vítaspyrnu seint í leiknum.