Fjölnir tók á móti Leikni R. í undanúrslitum Reykjavíkurmótsins í kvöld en leiknum lauk með 5-0 sigri heimamanna.
Ísak Óli Helgason kom Fjölni yfir strax á 11. mínútu og gestirnir skoruðu svo sjálfsmark á 36. mínútu og staðan því 2-0 í hálfleik.
Ægir Jarl Jónasson, Ísak Óli og Hans Viktor Guðmundsson skoruðu svo allir fyrir Fjölni í síðari hálfleik og niðurstaðan því 5-0 fyrir Fjölni.
Fjölnir er því komið í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins þar sem liðið mætir annaðhvort Fylki eða KR.