Tobias Thomsen er gengin til liðs við Val en þetta var tilkynnt í dag.
Hann skrifar undir eins árs samning við félagið, með möguleika á árs framlengingu.
Tobias spilaði með KR í Pepsi-deildinni síðasta sumar þar sem hann skoraði 13 mörk í 25 leikjum.
KR hafði einnig áhuga á því að fá danska framherjann en hann fór að lokum í Val.