Stjarnan tók á móti ÍBV í Fótbolta.net mótinu í dag en leiknum lauk með 4-1 sigri heimamanna.
Baldur Sigurðsson kom Stjörnunni yfir strax á 25. mínútu og Guðmundur Steinn Hafsteinsson tvöfaldaði forystu heimamanna á 29. mínútu og þannig var staðan í hálfleik.
Kári Pétusson kom svo Stjörnunni í 3-0 á 70. mínútu áður en Ragnar Már Lárusson minnkaði muninn fyrir ÍBV, mínútu síðar.
Hilmar Árni Halldórsson skoraði svo fjórða mark Garðbæinga á 82. mínútu og lokatölur því 4-1 fyrir Stjörnuna.