Keflavík og FH mættust í Fótbolta.net mótinu í dag en leiknum lauk með 3-1 sigri FH.
Grétar Snær Gunnarsson kom FH yfir strax á 7. mínútu en Jeppe Hansen jafnaði metin fyrir Keflavík undir lok fyrri hálfleiks.
Guðmundur Kristjánsson kom FH svo í 2-1 á 62. mínútu áður en Atli Viðar Björnsson innsiglaði sigur Hafnfirðinga á 75. mínútu og lokatölur því 3-1.
Þetta var fyrsti sigur FH í mótinu en Keflavík er áfram á botninum með 0 stig.