Jón Jónsson hefur ákveðið að setja knattspyrnuskóna sína á hilluna. Þetta segir hann í samtali við Fótbolta.net.
Jón hefur ekkert verið með FH í vetur og hefur ákveðið að kella þetta gott.
„Þó að ég sé hættur í knattspyrnu þá er ég ekki hættur í FH,“ bætti Jón við í samtali við Fótbolta.net.
Jón var hægri bakvörður sem kom sér að í byrjunarliði FH með miklum dugnaði.
Hann lék einnig með Þrótti hér á landi en Jón er einn vinsælasti tónlistarmaður Íslands.