Snemma í febrúar kemur hingað til lands lið frá Bandaríkjunum á vegum SoccerViza og mun liðið leika fjóra æfingarleiki gegn íslenskum liðum.
SoccerViza er knattspyrnulið og fyrirtæki sem hjálpar leikmönnum í Bandaríkjunum að finna sér nýtt lið, þetta hafa íslensk lið nýtt sér og þjálfarar frá Íslandi farið út og horft á leikmenn sem fyrirtækið er með á sínum snærum.
Nú heldur liðið til Íslands þar sem 22 leikmenn koma og munu spila fjóra leiki gegn Fylki, Val, ÍA og Álftanesi. Liðið verður hér á landi 7.–12. febrúar og líklegt að nokkrir leikmenn semji við íslensk lið í kjölfarið.