Dofri Snorrason, leikmaður Víkings Reykjavíkur er með slitna hásin en þetta staðfesti hann í samtali við fótbolta.net.
Hann meiddist í leik KR og Víkings R. í gær í Reykjavíkurmótinu og þurfti að fara af velli í fyrri hálfleik.
Ekki er ennþá ljóst hversu lengi hann verður frá en hann vonast til þess að vera klár þegar Pepsi-deildin hefst í vor.
„Stefnan er að verða klár þegar Íslandsmótið byrjar, alveg klárlega,“ sagði Dofri í samtali við fótbolta.net í dag.