Njarðvík tók á móti Aftureldingu í B-deild fótbolta.net mótsins í dag en leiknum lauk með 4-1 sigri heimamanna.
Georg Guðjónsson kom gestunum yfir á 25. mínútu en Arnór Björnsson jafnaði metin fyrir Njarðvík, tíu mínútum síðar og staðan því 1-1 í hálfleik.
Bergþór Ingi Smárason skoraði svo tvívegis fyrir heimamenn með stuttu millibili í síðari hálfleik áður en Arnór Björnsson bætti fjórða markinu við og niðurstaðan því 4-1 sigur heimamanna.
Njarðvík er á toppi riðils 1 með 4 stig en Aftuelding er áfram í þriðja sætinu með 3 stig.