FH og Grindavík áttust við í Fótbolta.net mótinu í dag en leiknum lauk með jafnefli.
Jóhann Helgi Hannesson kom Grindavík yfir en liðið kom liða mest á óvart í Pepsi delidinni síðasta sumar með góðri frammistöðu. Jóhann kom til félagsins í vetur og skoraði þarna sitt fyrsta mark.
Geoffrey Wynton Mandelano Castillion sem FH fékk frá Víkingi í vetur jafnaði leikinn.
Castillion er einn af fjórum nýjum leikmönnum í liði FH sem nú leikur undir stjórn Ólafs Kristjánssonar.