Leigubílasögurnar eru daglegur liður hér á 433.is. Í þessum lið er farið yfir helsta slúðrið og sögusagnirnar úr fótboltanum, aðallega úr bresku pressunni.
Félagaskiptaglugginn í stærstu deildum Evrópu er nú lokaður.
Það er hins vegar alltaf nóg af slúðri en það er BBC sem tók saman.
—————
Manchester City ætlar að bjóða Raheem Sterling nýjan og betrumbættan samning hjá félaginu. (ESPN)
Tottenham vill fá Bruno Fernandes frá Sporting en han kostar tæplega 90 milljónir punda. (Abola)
Dele Alli þarf að sýna meiri þroskamerki ef hann vill vera í byrjunarliði Englands á HM í Rússlandi. (Times)
Umboðsmaður Jurgen Klopp segir að hann myndi gera góða hluti með Bayern Munic. (Sport1)
Arsenal gæti reynt að kaupa Caglar Soyuncu, varnarmann Freiburg í sumar en hann kostar 30 milljónir punda. (Mail)
Shkodran Mustafi, varnarmaður Arsenal segir að liðið hafi átt góðan liðsfund eftir töpin gegn Manchester City þar sem að farið var yfir leiktíðina. (Mail)
Chelsea er að klára kaupin á 15 ára gömlum, hollenskum unglingi. (Mail)
Andros Townsend vonast ennþá til þess að fara með Englandi á HM í sumar. (Sun)