Leigubílasögurnar eru daglegur liður hér á 433.is. Í þessum lið er farið yfir helsta slúðrið og sögusagnirnar úr fótboltanum, aðallega úr bresku pressunni.
Félagaskiptaglugginn í stærstu deildum Evrópu er nú lokaður.
Það er hins vegar alltaf nóg af slúðri en það er BBC sem tók saman.
—————
Carlo Ancelotti er klár í að taka við Arsenal. (Star)
Arsenal leitar að eftirmanni Wenger en Leonardo Jardim stjóri Monaco, Mikel Arteta aðstoðarmaður Manchester City, Brendan Rodgers stjóri Celtic og Joachim Low koma til greina. (Telegraph)
Chelsea mun bjóða Eden Hazard nálægt 300 þúsund pundum á viku til að slökkva í áhuga Real Madrid. (Mail)
Antonio Conte mun halda starfi sínu hjá Chelsea út tímabilið. (Star)
Barcelona hefur áhuga á Toby Alderweireld miðverði Tottenham ef hann gerir ekki nýjan samning og sömu sögu er að segja um Manchester United. (Independent)
Chelsea og Manchester United munu bæði reyna að fá Robert Lewandowski ef hann fer frá FC Bayern. (Sky)
Tottenham er tilbúið að bjóða 35 milljónir punda í Ryan Sessegnon bakvörð Fulham sem er 17 ára. (Telegraph)
PSG gæti boðið Kylian Mbappe í skiptum fyrir Philippe Coutinho til að reyna að halda Neymar góðum. (El Pais)
Borussia Dortmund hefur áhuga á Malcom framherja Bordeaux líkt og FC Bayern og Tottenham. (Sun)