Lucas Moura er gengin til liðs við Tottenham en þetta var tilkynnt núna rétt í þessu.
Hann kemur til félagsins frá PSG og þarf enska félagið að borga 25 milljónir punda fyrir hann.
Hann skrifar undir fimm ára samning við félagið og verður því hjá Tottenham til ársins 2023, í það minnsta.
Moura hefur ekki átt fast sæti í liði PSG á þessari leiktíð og fékk lítið að spila eftir að félagið fékk þá Neymar og Kylian Mbappe.