Chelsea tók á móti Newcastle í enska FA-bikarnum í dag en leiknum lauk með 3-0 sigri heimamanna.
Michy Batshuayi kom heimamönnum yfir á 31. mínútu og hann bætti svo öðru marki við á 44. mínútu og staðan því 2-0 í hálfleik.
Marcos Alonso kom Chelsea svo í 3-0 á 72. mínútu með laglegu marki, beint úr aukaspyrnu og niðurstaðan því 3-0 sigur Chelsea.
Chelsea fer því örugglega áfram í 16-liða úrslitin en Newcastle er úr leik í keppninni í ár.