Liverpool tók á móti WBA í enska FA-bikarnum í kvöld en leiknum lauk með 3-2 sigri gestanna.
Það voru þeir Roberto Firmino og Mohamed Salah sem skoruðu mörk Liverpool í leiknum en Jay Rodriguez og Joel Matip sáu um markaskorun WBA í kvöld.
WBA skoraði öll mörkin í fyrri hálfleik og var staðan 3-1 í leikhléi fyrir gestina.
Þetta er í fyrsta skiptið, síðan árið 2014 sem Liverpool fær á sig þrjú mörk í fyrri háfleik á Anfield.
Liverpool fékk síðast á sig 3 mörk í fyrri hálfleik gegn Real Madrid í Meistaradeildinni en þá voru það þeir Cristiano Ronaldo og Karim Benzema sem skoruðu mörkin.