Liverpool hefur náð samkomulagi við Thomas Lemar, sóknarmann Monaco um að ganga til liðs við félagið en það er Yahoo Sports sem greinir frá þessu.
Leikmaðurinn hefur verið sterklega orðaður við Liverpool, undanfarna mánuði og þá hefur Arsenal einnig fylgst með honum.
Þá vildu fjölmiðar á Spáni meina að Lemar myndi ekki yfirgefa Monaco fyrir neitt annað félag en Barcelona.
Monaco vill fá 100 milljónir evra fyrir leikmanninn en Liverpool seldi Philippe Coutinho á dögunum til Barcelona fyrir 142 milljónir punda.
Hvort samkomulag náist áður en félagaskiptaglugginn lokar skal látið ósagt en glugginn lokar þann 1. febrúar næstkomandi.