Southampton tók á móti Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í dag en leiknum lauk með 1-1 jafntefli.
Davinson Sanchez kom heimamönnum yfir með klaufalegu sjálfsmarki á 15. mínútu en Harry Kane jafnaði metin fyrir Tottenham, þremur mínútum síðar.
Gestirnir sóttu án afláts í síðari hálfleik en heimamenn vörðust afar vel og niðurstaðan því 1-1 jafntefli.
Tottenham er áfram í fimmta sæti deildarinnar með 45 stig en Southampton er í því átjánda með 22 stig.