Javi Gracia verður næsti stjóri Watford en það er Sky Sports sem greinir frá þessu í dag.
Marco Silva var í morgun rekinn sem stjóri liðsins en hann tók við Watford í sumar.
Hann fór vel af stað með liðið en liðið hefur aðeins unnið einn leik í síðustu ellefu leikjum sínum og situr nú í tíunda sæti deildarinnar.
Gracia hefur m.a stýrt liðum á borð við Malaga og Rubin Kazan á ferlinum en hann er án starfs í dag.