Marco Silva hefur verið rekinn frá Watford en þetta var tilkynnt núna rétt í þessu.
Silva fór frábærlega af stað á þessari leiktíð og sat Watford í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar í upphafi móts.
Liðinu hefur hins vegar gengið hörmulega að undanförnu og er nú í tíunda sæti deildarinnar með 26 stig, fimm stigum frá fallsæti.
Síðan 25. nóvember hefur Watford aðeins unnið tvo leiki í ensku úrvalsdeildinni og tapað átta.
Silva tók við Watford í sumar en þar áður stýrði hann Hull City sem féll úr ensku úrvalsdeildinni, síðasta vor.