Alexis Sanchez mun ganga til liðs við Manchester United á morgun en enska pressan greinir frá þessu í kvöld.
Arsenal og United náðu samkomulagi fyrr í kvöld um félagaskipti leikmannsins til United en hann mun skrifa undir fjögurra og hálfs árs samning við félagið.
Upphaflega var reiknað með því að Sanchez yrði tilkynntur sem leikmaður United í kvöld en félagið vann 1-0 sigur á Burnley í kvöld.
Læknalið félagsins var á vellinum og átti svo að fara á Carrington til þess að sjá um læknisskoðun en samkvæmt fréttum á Englandi fékk læknaliðið frí í kvöld enda mikið álag á leikdegi.
Þeir munu því mæta á Carrington á morgun til þess að klára lænisskoðun Sanchez og þá getur leikmaðurinn loksins skrifað undir.