Manchester City tók á móti Newcastle í ensku úrvalsdeildinni í dag en leiknum lauk með 3-1 sigri heimamanna.
Sergio Aguero kom City yfir á 34. mínútu og staðan því 1-0 í hálfleik.
Aguero tvöfaldaði svo forystu heimamanna á 63. mínútu með marki úr vítaspyrnu en Jacob Murphy minnkaði muninn fyrir Newcsatle á 67. mínútu.
Sergio Aguero fullkomnaði svo þrennuna á 83. mínútu og lokatölur því 3-1 fyrir heimamenn.
City hefur því áfram 12 stiga forskot á toppi deildarinnar á Manchester United en Newcastle er í fimmtánda sæti deildarinnar með 23 stig.