Brighton tók á móti Chelsea í hádegisleik ensku úrvalsdeildarinnar í dag en leiknum lauk með 4-0 sigri gestanna.
Eden Hazard kom Chelsea yfir strax á 3. mínútu áður en Willian tvöfaldaði forystu Chelsea á 6. mínútu eftir magnað samspil við þá Hazard og Michy Batshuayi.
Markið var hrikalega vel útfært og kemur vafalaust til greina sem eitt af mörkum tímabilsins enda ekki oft sem að lið ná að sundirspila andstæðinga svona vel.