Fernandinho, miðjumaður Manchester City hefur framlengt samning sinn við félagið en þetta var tilkynnt núna rétt í þessu.
Samningurinn er til ársins 2020 og gildir því til næstu þriggja ára en hann kom til félagsins árið 2013.
City borgaði Shakhtar Donetsk 34 milljónir punda fyrir hann en miðjumaðurinn er algjör lykilmaður í liði Pep Guardiola.
Hann hefur komið við sögu í 30 leikjum með City á þessari leiktíð þar sem hann hefur skorað 2 mörk og lagt upp önnur 3.