Toby Alderweireld, varnarmaður Tottenham gæti verið klár gegn Liverpool en það er Standard Sport sem greinir frá þessu í kvöld.
Hann er af mörgum talinn einn albesti varnarmaðurinn í ensku úrvalsdeildinni en Tottenham hefur saknað hans mikið.
Hann meiddist aftan í læri í sigri Tottenham á Real Madrid í Meistaradeildinni í nóvember á síðasta ári.
Alderweireld er byrjaður að hlaupa og gæti snúið aftur til æfinga með aðalliðinu í næstu viku.
Liverpool tekur á móti Tottenham þann 4. febrúar næstkomandi en það er mikið undir í leiknum enda bæði lið í hörku baráttu um Meistaradeildarsæti.