Manchester City ætlar að bjóða alvöru upphæð í Jonny Evans, varnarmann WBA en það er Sun sem greinir frá þessu.
Varnarmaðurinn hefur verið sterklega orðaður við bæði Manchester City og Manchester United að undanförnu en hann er uppalinn hjá síðarnefnda félaginu.
Samkvæmt Sun er City tilbúið að borga 23,5 milljónir punda fyrir hann en WBA keypti hann á sínum tíma fyrir tæplega 8 milljónir punda.
Pep Guardiola, stjóri City vill styrkja varnarlínuna hjá sér en Vincent Kompany, fyrirliði liðsins hefur verið gríðarlega óheppinn með meiðsli, undanfarin ár.