Jon Flanagan varnarmaður Liverpool þarf að vinna samfélagsvinnu á næstunni.
Flanagan kom fyrir framan dómara í Liverpool í dag.
Í kringum jólin réðst hann á kærustu sína í miðborg Liverpool þegar þau höfðu skellt sér á djammið.
Flanagan þarf að vinna 40 klukkustundir í samfélagsvinnu fyrir brot sitt.
Flanagan þarf einnig að sæta meðferð í 15 daga þar sem hann fær hjálp til að stjórna skapi sínu.
Varnarmaðurinn fær lítið að spila hjá Liverpool en hann þarf nú að skella sér í vinnu eftir æfingar.
BREAKING: Liverpool defender Jon Flanagan sentenced to 40 hours of unpaid work and 12-month community order for assaulting his girlfriend. #SSN pic.twitter.com/JTZYbxscW4
— Sky Sports News (@SkySportsNews) January 17, 2018