Reading tók á móti D-deildarliði Stevenage í enska FA-bikarnum í kvöld en leiknum lauk með 3-0 sigri heimamanna.
Jón Daði Böðvarsson var í byrjunarliði Reading í kvöld en hann gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu í leiknum.
Reading þurfti að skipta um búninga í hálfleik þar sem að aðal búningur liðsins þótti of líkur treyjum Stevenage.
Jón Daði skoraði þrennuna því í mismunandi búningum í kvöld en myndir af þessu má sjá hér fyrir neðan.