N’Golo Kante, miðjumaður Chelsea er efstur á óskalista PSG en það er Daily Express sem greinir frá þessu í dag.
Kante hefur verið magnaður í ensku úrvalsdeildinni, síðustu tvö ár og hefur lyft enska úrvalsdeildartitilinum í tvígang á þessum tíma.
Fyrst með Leicester, árið 2016 og svo með Chelsea árið 2017 en síðarnefnda liðið keypti hann af Leicester fyrir 32 milljónir punda.
Kante er franskur og gæti verið spenntur fyrir því að snúa aftur til heimalandsins en hann kom til Leiceter frá Caen í Frakklandi.
Hann hefur spilað 25 leiki fyrir Chelsea á þessari leiktíð þar sem hann hefur skorað eitt mark en hann hefur verið óheppinn með meiðsli að undanförnu.