Alexis Sanchez, sóknarmaður Arsenal er sterklega orðaður við Manchester United og Manchester City þessa dagana.
Hann verður samningslaus næsta sumar og getur því farið frítt frá félaginu en bæði Manchester liðin hafa lagt fram tilboð í Sanchez í janúarglugganum.
Sanchez vill frekar fara til Manchester City enda liðið nánst búið að vinna ensku úrvalsdeildina.
Mirror greinir hins vegar frá því í dag að Arsenal muni ekki selja Sanchez, nema þeir finni staðgengil fyrir hann.
Sanchez hefur verið einn besti leikmaður Arsenal, undanfarin ár en Wenger vill frekar missa hann frítt næsta sumar en selja hann núna og missa af Meistaradeildarsæti.