Manchester United hefur lagt fram tilboð í Alexis Sanchez sóknarmann Arsenal. Þetta fullyrðir Guardian.
Sagt er að United sé búið að bjóða 25 milljónir punda í kantmanninn frá Síle.
Þá er sagt að United sé búið að bjóða Sanchez hærri laun en City sem hefur boðið Sanchez 250 þúsund pund á viku.
Sagt er að United hafi einnig boðið Arsenal að fá Henrikh Mkhitaryan. Launapakki Mkhitaryan er 200 þúsund pund á viku.
United vill nú reyna að krækja í Sanchez en Manchester City bauð 20 milljónir punda í hann fyrr í vikunni.
Því tilboði hefur Arsenal ekki svarað og nú gæti baráttan harðnað um Sanchez.