Ian Abrahams fréttamaður hjá Talksport var mættur á æfingarsvæði Cardiff í dag.
Þar hitti hann Aron Einar Gunnarsson miðjumann félagisns og fyrirliða Íslands.
Abrahams segir Aron vera vin sinn en þeir spjölluðu saman fyrir utan.
Á mynd sem Abrahams birtir sést að Aron er byrjaður að safna skegginu aftur og er ekki ólíklegt að hann muni skarta því á HM næsta sumar.
Aron er á hækjum en hann fór í aðgerð á ökkla í desember og vonast til að byrja að spila aftur í febrúar.
Mynd af þessu er hér að neðan.
Good seeing my friend Aron Gunnarsson at @CardiffCityFC this morning, hope to see him back playing soon pic.twitter.com/noewyNRZhk
— Ian Abrahams (Moose) (@BroadcastMoose) January 11, 2018