Francis Coquelin, miðjumaður Arsenal er að ganga til liðs við Valencia en það er Sky Sports sem greinir frá þessu.
Félögin hafa nú þegar náð samkomulagi um kaupverðið en það hljóðar upp á 12 milljónir punda.
Coquelin kom til Arsenal árið 2008 frá Stade Lavallois í Frakklandi og skrifaði undir fyrsta atvinnumannasamning.
Hann hefur komið við sögu í 15 leikjum með Arsenal á þessari leiktíð en hann hefur ekki átt fast sæti í liðinu að undanförnu.