Farhad Moshiri eigandi Eveton segir Gylfa Þór Sigurðsson vera hluta af ´Fab four´ hjá félaginu.
Everton festi kaup á Cenk Tosun framherja frá Tyrklandi í síðustu viku.
Stuðningsmenn Everton vona að sóknarleikur liðsins verði betri með því.
,,Við erum ánægðir með að fá Tosun sem okkar aðalmann í sóknarleikinn,“ sagði Mashiri.
,,Við erum með Yannick Bolasie aftur, Gylfa og Rooney. Þetta eru okkar ´Fab four´.“
Gylfi kom til Everton í sumar og hefur verið að komast betur og betur inn í leik liðsins.