Claude Puel, stjóri Leicester segir að Kelechi Iheanacho þurfi að bæta sig sem leikmaður.
Iheanacho kom til félagsins frá Manchester City í sumar en hefur ekki staðið undir væntingum.
„Kelechi er ennþá ungur leikmaður og hann á mikið eftir ólært,“ sagði Puel.
„Hann verður að bæta sig ef hann vill fá að spila,“ sagði hann að lokum.