Harry Kane var hetja Tottenham er liðið tók á móti Wimbeldon í enska bikarnum i dag.
Leikið var á Wembley en markalaust var í fyrri hálfleik.
Í síðari hálfleik hlóð Kane í tvö mörk áður en Jan Vertonghen skoraði þriðja og síðasta markið.
West Ham þarf að mæta Shrewsbury aftur eftir markalaust jantefli í dag.
Síðari leikurinn fer fram í London á heimavelli West Ham.