Þessa stundina er West Ham í heimsókn hjá Shewsbury í ensku bikarkeppninni. Staðan er 0-0 eftir um hálftíma leik.
Joe Hart stendur vaktina í marki West Ham en sólin fór að angra hann snemma leiks.
Hart var ekki með neina derhúfu á sér en stuðningsmaður West Ham fyrir aftan mark hans kom honum til bjargar.
Stuðningsmaðurinn kastaði derhúfu sinni inn á völlinn og hana notar Hart nú í leiknum.
Myndir af þessu eru hér að neðan.