Sú ákvörðun Liverpool að selja Philippe Coutinho í gær mun ekki verða til þess að Thomas Lemar verði keyptur í janúar.
Liverpool sýndi Lemar áhuga í sumar en náði ekki að klófesta kappann þá.
Margir töldu að Liverpool myndi reyna að kaupa Lemar nú þegar Coutinho er farinn til Barcelona.
Sky Sports fullyrðir hins vegar að Liverpool muni ekki reyna að kaupa Lemar nú í janúar.
Monaco hefur ekki áhuga á að selj hann en möguleiki er á að Lemar verði til sölu næsta sumar.