Liverpool og Everton mættust í enska FA-bikarnum í gærdag en leiknum lauk með 2-1 sigri Liverpool.
Leiðinlegt atvik átti sér stað í fyrri hálfleik þegar Mason Holgate og Roberto Firmino lenti saman eftir að sá fyrrnefndi ýtti Firmino út í stúku í baráttu um boltann.
Firmino brást ókvæða við og lét Holgate heyra það duglega sem hefur nú sakað hann um að kalla sig negra í tvígang.
Mirror fékk sérfræðinga í varalestri til þess að skoða myndbandsupptökur af atvikinu og það er ljóst að Firmino lét fúkyrðum rigna yfir varnarmanninn.
Hins vegar er ekkert sem bendir til þess að hann hafi verið með kynþáttafordóma í garð leikmannsins en enska knattspyrnusambandið skoðar nú atvikið.