Carlos Carvalhal segir að það styttist í endurkomu Wilfried Bony og Tammy Abraham.
Báðir leikmennirnir eru að glíma við meiðsli en Swansea saknar þeirra mikið.
„Það styttist í þá, bæði Bony og Abraham,“ sagði stjórinn.
„Við söknum þeirra og þeir eru afar mikilvægir fyrir okkur,“ sagði hann að lokum.