Philippe Coutinho, sóknarmaður Liverpool verður orðinn leikmaður Barcelona á allra næstu dögum en þetta fullyrða spænskir fjölmiðlar í dag.
Forráðamenn Liverpool og Barcelona hittust í dag til þess að ræða kaup spænska félagsins á Coutinho.
Leikmaðurinn hefur verið sterklega orðaður við Barcelona, undanfarna mánuði en félagið lagði fram þrjú tilboð í hann, síðasta sumar.
Liverpool vill fá að minnsta kosti 130 milljónir punda fyrir Coutinho sem vill ólmur komast til Spánar.
Hann hefur verið frábær fyrir félagið á þessari leiktíð og hefur skorað 12 mörk í 18 leikjum.