David Silva var mættur aftur í lið Manchester City í gær þegar liðið vann 3-1 sigur á Watford.
Silva hafði ekki verið með undanfarið en ástæðan var persónulega en eki meiðsli.
Þessi magnaði leikmaður hefur greint frá því að sonur hans hafi komið í heiminn langt fyrir tímann.
Búið er að skíra hann, Mateo en hann berst nú fyrir lífi sínu á Spáni. Silva hefur því eytt tíma þar.
Ekki er öruggt að Silva spili næstu leiki City en Pep Guardiola stjóri City hefur sagt að fjölskyldan sé í fyrsta sæti.
COMUNICADO OFICIAL: pic.twitter.com/8Ooaef92ro
— David Silva (@21LVA) January 3, 2018