Yaya Toure miðjumaður Manchester City er heill heilsu en kemst ekki í leikmannahóp liðsins.
Ástæðan virðist vera að Pep Guardiola stjóri liðsins telur Yaya ekki í nógu góðu formi.
Yaya er samningslaus í sumar og er líklegt að hann fari þá frá City.
,,Hann er heill heilsu, þetta er undir honum komið,“ sagði Guardiola í dag.
,,Hann veit hvað hann þarf að gera til að komast í hópinn.“
Guardiola on Toure: It is up to him. He is fit. He knows what he has to do #MCFC
— Andy Hampson (@andyhampson) February 28, 2018