Frank Lampard fyrrum miðjumaður Chelsea er klár í að skella sér út í þjálfun í sumar.
Lampard var boðið að taka við Oxford á dögunum en afþakkaði starfið.
Hann er að mennta sig sem þjálfari þessa dagana og þangað stefnir hugur hans.
,,Ég klára A-gráðuna í sumar og það gefur mér tækifæri til þess að fara í starf,“ sagði Lampard.
,,Ég byrja svo að taka UEFA Pro Licence prófið í sumar og maður þarf það til að starfa í Meistaradeildinni, það tekur eitt ár.“
,,Ég gæti farið í starf áður en má þá ekki starfa hjá liði sem er í Evrópukeppni. Ef rétta tækifærið kemur í sumar er ég klár í að skoða það.“