Juventus vill ganga frá samningi við Emre Can miðjumann Liverpool á næstu sjö dögum.
Ítalskir fjölmiðlar segja frá þessu en Can verður samningslaus hjá Liverpool í sumar.
Hann getur því skrifað undir við Juventus núna og farið frítt til félagsins í sumar.
Juventus hefur lengi haft áhuga á Can og vilja þeir svör á næstu dögum.
Ef Can er ekki klár í að krota undir hjá Juventus næstu vikuna hótar félagið því að hætta við að fá hann.