Manchester United 2 – 1 Chelsea
0-1 Willian (32′)
1-1 Romelu Lukaku (39′)
2-1 Jesse Lingard (75′)
Manchester United tók á móti Chelsea í stórleik ensku úrvalsdeildarinnar í dag en leiknum lauk með 2-1 sigri heimamanna.
Willian kom Chelsea yfir á 32. mínútu en Romelu Lukaku jafnaði metin fyrir heimamenn á 39. mínútu og staðan því 1-1 í leikhléi.
Jesse Lingard skoraði svo sigurmark United á 75. mínútu eftir að hafa komið inná sem varamaður og lokatölur því 2-1 fyrir Manchester United.
United fer upp í annað sæti deildarinnar með sigrinum og er nú með 59 stig en Chelsea er komið í fimmta sæti deildarinnar með 53 stig, tveimur stigum frá Meistaradeildarsæti.